Elmar Freyr

As Sick As I Am I Would Never Be You

30.06.2008 02:33:22 / babangida

El Mar Marri is on Marmaris

pakka í sólarlandaferð?  Maður þarf bara skýlu og svejk!

Lög Dagsins:
Beirut - Scenic World
Death Cab For Cutie  - I Will Possess Your Heart
Flobots - Handlebars
Radiohead - Street Spirit (Fade Out)
Sigur Rós - Hoppípolla


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 06:01:24 / babangida

Je je je

Ég er að pæla í að detta í sama pakka og flestir aðrir sem ég þekki og hætta þessu rugli, enda getur hver sem er séð þetta... bull

Fátt hefur svosem gerst síðan síðast, vinnan er eins og hún er og fáar góðar sögur að segja úr henni enda kannski ekki siðferðislegt að gera það. Ekki það að djammsögur eru það varla heldur.
Sumarið er samt alltaf jafn furðulegur tími. Maður fær þessa sömu tómleikatilfinningu sér í lagi þar sem það er ekkert sem maður ætti að vera að gera annað þegar að maður er í fríi. Síðan er ég alvarlega að pæla í að flytja. Spurningin er bara hvert og með hverjum. Þúst, æjifokkjú!

Lög Dagsins:
Faith No More - I Started a Joke
Flobots - Handlebars
Incubus - Love Hurts
Morrissey - The More You Ignore Me the Closer I Get
Sprengjuhöllin - Verum í sambandi
Travis - My Eyes


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 02:00:49 / babangida

Now the Joke is on Me - Say it Right

Það er ekki alltaf sem allir brandarar eru jafn fyndnir og fékk ég að kynnast því eftir síðustu færslu. Sem btw kom fyrir rúmum mánuði og ég sem ætlaði að vera amk semi-virkur. Það er allavega nóg búið að vera að gera síðan þá. kláraði prófin og fór að vinna... mjög mikið. Opnuðum nýjan stað niður í Ánanaustum. Annars var ég að koma úr viku fríi frá Akureyri sem var mjög gott, sérstaklega þar sem ég ætla ekki að vera þar í sumar. En djöfull er samt Eyjafjörðurinn fallegur miðað við umhverfisleysið hér í borginni. Svo hrundi bíllinn minn auðvitað og eg er að bíða eftir að hann verði lagaður og komist í gegnum skoðun.

Annars var GEGG-ið fyrir norðan snilld. Flott að komast í smá afslöppun og vinna pínu í sveitinni. Svo var tekið á því um helgina. Ófáir öl voru drukknir, Potturinn var góður og stórsteikin með. Páfagaukurinn og sjóræninginn, Búllu-Raggi, Átta manna her, Ráðhúsið, pilsamátun... svöss, ég held að ég haldi aftur til Ak. sem fyrst bara! Þú heyrir mig allavega ekki kvarta

Lög Dagsins:
Barenaked Ladies - The Big Bang Theory
Faith No More - Ashes to Ashes
Faith No More - I Started a Joke
Faith No More - We Care a Lot
Gusgus - Hold You
Hjálmar - Hafið
José González - Teardrop
José González - Heartbeats
Morrissey - The World is Full of Crashing Bores
Morrissey - Suedehead
Nelly Furtado - Say it Right
Pétur Ben - White Tiger
Sálin - Orginal
The Pretenders - I Would walk 500 Miles (Sævar Árna!)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 05:50:00 / babangida

One of Life's Great Mysteries

Ætli það sé ekki best að henda inn einni færslu þar sem ég lofaði að halda þessu bloggi lifandi, þó að mér sýnist ég vera einn af fáum sem virðast enn blogga. Bloggið er á undanhaldi! Annars virðist ég finna mér allt annað að gera þessa dagana en að læra en prófin eru rétt að byrja hjá mér (og reyndar virðast þau vera að enda líka því 5. maí er síðast prófdagur). Ég fór meira að segja út og keypti mér bók (já ég af öllum mönnum!) sem er ekki sniðugt þegar ég á að vera að lesa fyrir prófin, en jæja ég lofa að lesa ekki meira fyrr en eftir prófin héðan í frá. Ég virðist nefnilega að vera að komast í prófstressið sem kemur mér yfir í lestrarstuðið. Ég las aðeins í dag en fann mér ætíð eitthvað skemmtilegra að hugsa um og gera. Hékk á netinu stóran part úr degi og downloadaði þáttum sem ég horfði svo á. Talandi um það þá er ég einmitt búinn að ná mér í House MD þætti frá upphafi sem ég er byrjaður og næstum hálfnaður á að horfa á og það svona stuttu fyrir prófin. Svo fór ég meira að segja út að skokka ég nennti svo ekki að læra, og þarf auðvitað að fara að hreyfa mig meira... næstu 5 dagar verða skemmtilegir! Annars er það mjög furðulegt að ég er að drepast í öðru eistanu, en það er líklega bara skortur á notkunarleysi. Ja ekki varð ég var við að klemma það í skokkinu eða fá annað högg á það. One of life's great mysteries! Ég fékk að vita í dag að tölvan mín er tilbúin úr viðgerð og þarf ég að sækja hana á næstu viku, en það var svo ekkert að tölvunni spennubreytirinn var víst bara ónýtur... þá get ég líklega farið að hlusta á alla tónlistina mína aftur og downloadað henni og svona... alveg frábært!

Lög Dagsins:
Nick Cave & the Bad Seeds - He Wants You
Elvis Costello - You Are Beautiful
The Viking Giant Show - Highway to Hell


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 07:26:53 / babangida

I Just Want to See the Boy Happy

Best að setja inn smá færslu hér og halda þessu lifandi. Það skoða þetta líklega fáir samt þar sem að það er ekkert líf í þessari síðu og svo vita auðvitað fáir af henni. En endilega ef þér detta í hug  einhverjar hugsanir við að lesa þetta kommenta að bara til þess að láta mann vita að þetta sé lesið. Það hvetur mann líka til að skrifa oftar. Annars hafði ég hugsað mér að skrifa oftar hér inn þó að nú sé kannski ekki besti tíminn, rétt fyrir próftíðina, að lofa svona. Og þá að setja meira inn alls konar hugsanir og vangaveltur sem vonandi geta verið áhugaverð lesning og jafnvel hugsanlega vonandi fyndnar eða a.m.k. Skondnar.

Smá update: Tölvan mín er enn í viðgerð, flakkarinn er kominn úr viðgerð og er sem nýr (sérstaklega reyndar þar sem að allt niðurhalaða efnið mitt er horfið :cry: ), ég er að fara að henda DVD-spilaranum mínum, Ég keypti mér Flunkunýjan síma. Ég er semsagt enn í lánstölvu sem ég nenni ekki eða vil ekki gera ýmsa hluti við eins og að setja tónlist inn á t.d. og hef lítið getað hlustað á tónlist. Hef þess vegna bara hlustað á diska í bílnum hjá mér eða í playstation tölvunni hér heima. Hef til dæmis hlustað á plötu sem er frá live tónleikum hjá Morrissey í Hollywood Bowl í Hengla. Ég mæli sterklega með þeirri plötu og reyndar með Morrissey, því hann er "ekkert" nema snillingur.

Nú tel ég mig vera góðan og samviskusaman bílstjóra sem virðir reglurnar, en var að velta fyrir mér á leiðinni heim áðan, öll þau umferðarlagabrot sem ég framdi og frem oft. Ég var að keyra heim seint þegar enginn/fáir voru á ferli og skrifast kannski mörg brotin á það. Ég Sikksakkaði á milli Akreina  og tók beygjur án þess að gefa stefnuljós, eins og t.d. út úr hringtorgum. Ég keyrði yfir leyfilegum hámarkshraða og geri oft, en fylgi samt oftast umferðarhraða, sem er oft meiri en leyfilegur hámarkshraði. Ég stoppaði ekki á stöðvunarskyldu, sem ég geri oft þar sem að reglurnar segja að maður eigi að stoppa algjörlega en er oftast óþarfi. Oft stoppa ég ekki við gangbrautir, sem fólk er að bíða eftir að geta farið yfir, þó að fólkið eigi réttinn. Mér til varnar í þeim efnum er að oft er fljótlegra að keyra bara áfram fyrir alla aðila að fara bara yfir í stað þess að stoppa og bíða meðan fólkið fer yfir eða yfirhöfuð áttar sig á að maður stoppaði í raun og veru fyrir þeim. Þetta eru þau sem ég man eftir svona í fljótu bragði og skipta kannski litlu máli en vekja mann jafnframt til umhugsunar. Dettur einhverjum öðrum fleiri dæmi í hug?

Mér dettur líka í hug og er að hugsa um, þar sem ég er svo skrítinn og hef gaman af skrítnum hlutum. Ég er áhugamaður um ORÐ, og sérstaklega orð sem virka skrítin og ég hef nú þegar notað nokkur þannig í þessari færslu. Ég man til dæmis eftir því í mynd með Chris Farley að honum fannst enska orðið Road mjög skrítið og merkilegt sem er að mörgu leyti rétt. Snilldar atriði! Einnig finnst mér gaman að nota orð/orðasambönd sem eru óalgengari í notkun en önnur sem þýða það sama eins og að nota t.d. selja upp í stað æla eða gubba. Það að Melda sig er eitthvað sem  mér finnst alltaf sniðugt að sjá, óalgengt orð eins og Flunkunýr, Akrein, (heitir akrein en ekki akgrein), í sama flokki orð sem ekki allir viðurkenna á sama hátt og ég en orðið Hunsa er ekki skrifað Hundsa, orð sem ég nýlega komst að að sé líklega sér Akureyrskt: Liðónýtur, orð sem hefur alltaf ljómar hálf skringilega fyrir mér eins og blæti, orðanotkun eins og Sikksakka. Og orð sem mér finnst mjög merkilegt en það er orðið Lágur, sem er yfirleitt borið fram sem lár... en látum hér staðar Numið, sem er annað skrítið orð en er afbrigði af sagnorðinu að Nema, af orðum. En þetta var aðallega Orðabunugangur (sko hér er hægt að halda áfram endalaust) í mér og hljómar kannski einsog eitthvað bull fyrir öllum nema mér. Dettur einhverjum fleiri dæmi í hug?

Nokkrir hlutir sem ég meðal annars nenni ekki að minnast á núna: Arsenal, Námið O.fl.

Ég vil líka skora á Andra og Lilju að fara að blogga, ég kasta kannski steinum úr glerhúsi núna, en það er alltaf gaman að lesa um sama hversu hversdagslegir hlutir eru og þó að maður bloggi ekki. Ég meina maður kíkir hvort eð er nánast daglega á bloggin hjá mörgum vinum sínum.

Lög Dagsins:
No Pussy Blues - Grinderman
I Just Want to See the Boy Happy - Morrissey
Life is a Pigsty - Morrissey
There is a Light and It Never Goes Out - The Smiths
Some Girls are Bigger than Others - The Smiths


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 22:43:25 / babangida

Life is a Pigsty

Verður maður ekki að fara að rífa þetta blogg upp eitthvað? Ég held það. Nenni nú varla að vera að segja frá í einhverjum smáatriðum hvað hefur gerst undanfarna mánuði... stikla kannski á stóru. Mér mistókst a.m.k. að blogga í mars og verður mér refsað fyrir það. En það gerðist hvort eð er ekkert merkilegt í þeim mánuði. Ég kom bara frá London og hékk í íbúðinni minni að gera ekkert milli þess sem ég mætti í vinnu. Fór reyndar í viku í páskafrí til ak. Var duglegur þar, tók fótbolta 4 sinnum meðan að ég var þar og djamm og drykkju jafn oft.

Ég lenti í góðum málum núna í kringum páskana líka. Flakkarinn minn hrundi rétt fyrir páska og ég fór með hann í viðgerð sem hann btw er enn í. Eftir að ég kom suður eftir páska hrundi svo tölvan mín, eða hún hætti að hlaða sig og er núna í viðgerð. Síminn minn er líka alveg í bulli og hættur að virka almennilega. Ég ætlaði að fara að horfa á DVD myndir til að hafa eitthvað að gera, en neinei þá eyðilagðist DVD spilarinn minn. Ég var farinn að horfa á spilastokkinn og pæla alvarlega í því að fara að leggja kapal. Allavega gera allt annað en að læra...

Annars er það að frétta að ég er með bólu á rassinum. Ég finn alltaf fyrir henni þegar að ég sest niður, frekar óþægilegt. Önnur pæling er sú að ég er alveg viss um að ef ég lifi langt fram eftir ævi að ég komi til með að fá gyllinæð. Ég held að það sé ekkert eðlilegt að sitja svona lengi á klósettinu þegar að ég geri það.

Ég hef semsagt ekki getað hlustað almennilega á tónlist þar sem að tölvan mín með öllum lögunum hrundi. En ég keypti mér nýja diskinn með Morrissey, the Greatest Hits, og er tónlistin kannski frekar lituð eftir því. Með honum fylgdi diskur með live upptöku frá Hollywood Bowl... sem er ekkert annað en snilld

Lög Dagsins:
Morrissey - Life is a Pigsty
Morrissey - Irish Blood, English Heart
Morrissey - I Will See You in Far-Off Places
Morrissey - Let Me Kiss You
Bloddgroup - Red Egypt
Band of Horses - No One's Gonna Love You
Serj Tankian - Sky is Over


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 19:29:10 / babangida

London Baby!

Jæja, ég er staddur úti í London og það er enn febrúar. Leikurinn er á morgun og gaman.

Lög dagsins:
Beirut - Nantes
Editors - The Racing Rats
Editors - Bones
Morrissey - Come Back to Camden
Staind - Outside


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 03:43:39 / babangida

Self-Inflection

Annars komið nýtt ár, breytt síða... alveg kominn tími til. Ég nenni samt ekki að koma með einhvern árslista eins og ég ætlaði að koma með, ég ætla bara að nefna það sem er efst á baugi hjá mér. Ég er auðvitað bara nýkominn að norðan og skólinn að byrja aftur og einkennist þessi færsla líklega mest af því.

Annars tókst mér að lokum að klára ritgerðina sem hékk yfir mér mest öll jólin og skilaði henni svo. Ég er ekki viss um að þetta sé neit svakalega góð ritgerð en ég hlýt að ná faginu, þá náði ég öllu amk. Nú er bara komið að því að velja sér áfanga næstu önnina. Er ekki alveg viss hvað ég á að velja, get valið 35 einingar í enskunni og mér lýst varla nógu vel á valkostina til að geta valið mér 15 einingar af þessu. Ætli ég mæti ekki bara í nokkra tíma og velji svo það sem mér líst best á.

Annars byrjar átakið hjá manni núna. Fara reglulega upp á hlöðu að læra, ekki læra allt fagið upp í lok annarinnar. Kaupa sér svo kort í ræktina og stunda það af krafti. Minnka drykkjuna allsvakalega, var edrú 1.-21. des og er svo aftur búinn að vera edrú frá 1.jan þar til nú. Fer kannski í vísindaferð á föstudaginn, en þarf reyndar að redda fríi úr vinnu og annað vesen. Ég er kominn með sterk áhrif áfengissýki, farinn að fá black-out nánast alltaf undantekningalaust þegar ég drekk sem varir oft yfir langan tíma djammsins. Gott að eiga góða vini samt sem segja manni hvað gerðist!

Annars er ég alltaf að komast betur og betur að því þegar ég fer á Ak. að þetta er deyjandi staður, amk fyrir mér. Það eru eiginlega engir eftir sem ég þekki þarna. Ég á aðeins örfáa vini þarna núna. Ef maður kíkir svo út á djammið þá eru fæstir þar Akureyringar. Rétt er það reyndar að þeim fjölgaði verulega á jóladjamminu en yfir venjulegar helgar eru ekki margir þannig þar. Ég hallast alltaf meira að því að segja endanlega skilið við plássið og vera bara hér í Rvk yfir sumarið. Það skýrist reyndar allt eftir því hvaða vinnu ég fæ í sumar og hvað ég ætla að gera.

Annars gerði ég aðra stórmerkilega uppgötvun meðan ég var fyrir norðan. Ég var ekki með geisladiskana mína, og þar sem mér finnst oft gott að taka smá rúnt og keyra um og hugsa og annað, þá varð ég að hlusta á útvarpið á meðan. Yfirleitt hlusta ég á Rás 2 þar sem þeir eru með bestu tónlistina, ekki bara einhverja vinsæla froðu heldur allan skalann. Rás 2 var góð eins og venjulega en X-ið 97,7 (90,9 á Ak.) var að koma sterkt inn. Voru að spila allskonar skít, allt frá Morrissey og Sigur Rós, yfir í Korn, Queens of the Stone Age, Weezer, Editors, Mugison, Band Of Horses og margt fleira sem er kannki óþarfi að telja upp. En rosalega er það samt gott að komast suður aftur að hlusta á tónlistina sem ég er með samt!

Þá er komið að því sem mér finnst oft hvað mest spennandi við að blogga, eins furðulegt og það hljómar... að setja inn lista af lögum sem ég er að fíla í augnablikinu.

Lög Færslunnar:
Band Of Horses - Is There a Ghost
Band Of Horses - The Funeral
Dolly Parton - Stairway to Heaven
Editors - Smokers Outside the Hospital Doors
Jeff Who? - She's Got the Touch
The Kronos Quartet - Flugufrelsarinn
Modest Mouse - Little Motel
Morrissey - The Youngest Was the Most Loved
Mugison - Mogiboogie
Serj Tankian - Unthinking Majority
Serj Tankian - Empty Walls
Sigur Rós - Hoppípolla
The Viking Giant Show - The Cure
The Viking Giant Show - Party at the White House
Weezer - This is Such a Pity


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 19:40:03 / babangida

Samt Vantar Eitthvað... Gerum Okkar Besta

Ég ætla að taka þeirri áskorun Lilju að fara að blogga þó að maður sé varla að nenna þessu. Mér sýnist bloggið vera hálfdautt og Myspace og Fuckface (Facebook) séu búin að taka við þessu. Fáir núorðið sem virðast nenna að blogga amk.

Það eru nú einu sinni jól og um að gera að segja aðeins frá þeim. Kláraði prófin rétt fyrir jól og er búinn að fá út úr einu fagi og náði því með glæsibrag. Hin fögin verða líklega ekki eins glæsileg. Svo kom maður norður 22. des og náði varla að komast í neinn jólafíling áður en þau skullu á og jólasteikin var borðuð og jólapakkarnir opnaðir. Jólasteikin var fín eins og venjulega og pakkarnir kærkomnir, þó svo að þeir hafi eiginlega allir verið mjúkir. Buxur, vesti, brók og skór, -vesti og -skór en það er samt mjög fínt. Svo fékk ég líka plötuna "...Gerum okkar besta" með íslenska handboltalandsliðinu, Valgeiri Guðjóns og Ladda. Mjög kærkomin gjöffylgdi reyndar styrkur í minu nafni til ABC Barnahjálpar.

Annars er hægt að segja að það hafi varla runnið af kallinum síðan hann kom til Akureyrar í jólafrí en allur desembermánuður fram að því hafði verið öllaus. Nú er líkaminn líka búinn að gera uppreisn og hálfur janúar líklega tekinn í að jafna sig af því. Ég þarf líklegast að kíkja til læknis sem fyrst, en get nú ekki sleppt gamlárskvöldi... ég meina ef ég lifi þetta ekki af þá dey ég bara, þetta reddast.

Lög Dagsins:
Valgeir Guðjóns og Íslenska Handboltalandsliðið - Gerum Okkar Besta
The Arcade Fire - No Cars Go
Bloodgroup - Hips Again
Bloodgroup - Moving Like a Tiger
Hjálmar - Nú Er Lag
Hjálmar - Vísa Úr Álftamýrinni
The Knife - Heart Beats
The Hoosiers - Worried About Ray
Sigur Rós - Starálfur
Snow Patrol - Chasing Cars
The White Stripes - You Don't Know What Love is (You Just do as You're Told)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 06:15:15 / babangida

Every Day I Play a Sad Game/ I Look Around and I Remember I'm Alone...

Próftíð í gangi og alt að gerast, ja eða ekkert. Búinn að hafa nægan tíma til þess að læra en byrjaði ekki af alvöru fyrr en í dag. Þarf að vera mjög duglegur ef ég ætla að ná að lesa allt fyrir bókmenntafræðiprófið mitt. Síðan þarf ég líka að gera eina ritgerð eftir prófin, en verð vonandi búinn með hana fyrir jól. Það verður sko ljúft að komast í jólafrí, slappa aðeins af og endurhlaða batterýin fyrir næstu önn þar sem loksins verður tekið á (í alvöru sko !).

Þar sem að prófin eru á næsta leyti þá sleppti ég því líka alveg að fá mér öl um síðustu helgi og næsta verður öllaus líka. Úff erfitt að fá ekki að kíkja í bauk í svo langan tíma og ég held að það hafi ekki gerst í langan tíma hjá mér að það líði ca. 3 vikur a.m.k. á milli. Þetta var ekki erfitt um helgina, og hafði ekki verið fyrr en núna í kvöld þegar ég var búinn að vera að lesa í dágóða stund. Held að mig hafi ekki langað jafn mikið í bjór í langan tíma. Setti góða tónlist á og vantaði bara bjórinn í hina hendina.

Það er alveg yfirþyrmandi hvað það er líka margt að gerast næsta mánuðinn. Þegar ég verð búinn með prófin fer ég norður fyrir jólin og kem mér fyrir þar og þarf að lifa þann tíma af. Ég þarf að ákveða hvað ég ætla að gera á næstu önn, skrá mig í námskeið og þannig. Ákveða hvað verður um mig næstu önnina og rúmlega það. Svo fer bara að styttast í sumarið og ég veit ekkert hvað ég á að gera í sumar, hvort ég eigi að vera fyrir sunnan eða fara norður og hvar ég eigi að vinna. Allar hugmyndir vel þegnar. Annars stefni ég á að fara í a.m.k. eina utanlandsferð í sumar (Sjitt hvað ferðin til Krítar síðasta sumar var mikil snilld!) og svo auðvitað til eyja um versló. En líklega allt of snemmt að fara að hugsa út í það núna

Síðan er það nýja trendið sem fólk hefur tekið upp á sem er að hringja í mig um miðja nótt. Síðustu 5 nætur hefur verið hringt í mig 3 sinnum. Tvisvar um 3 leytið og einu sinni kl 6:30 um morguninn... og aldrei hefur verið góð ástæða fyrir símtölunum!

Blues Traveler - The Hook
Counting Crows – Round Here
Damien Rice – 9 Crimes
Deat Cab For Cutie – I Will Follow You Into the Dark
Incubus – Love Hurts
Morrissey – In the Future When All is Well
Nick Cave & the Bad Seeds – The Curse of Millhaven
Rihanna – Don‘t Stop the Music
Robbie Williams - Lola
The Smiths – The Boy With the Thorn in His Side


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 02:08:54 / babangida

Solo Noi

Ég er búinn að lofa mér að blogga a.m.k. einu sinni í mánuði. Núna er komið að því, ekki það að ég hafi neitt merkilegt að segja. Maður er aldrei í stuði til að blogga nema þegar maður er ekki í svo góðu skapi. Þess vegna enda færslurnar yfirleitt alltaf á því að hljóma eins og væl og nöldur og kvart og bara ekkert skemmtilegar. Það skoða reyndar ekkert margir þetta þannig að það skiptir ekki öllu máli en ég verð að sanna fyrir sjálfum mér að ég geti gert þetta.

Ég er farinn að hlakka svo til jólafrísins, þar sem ég er svo andlega útkeyrður að ég verð að fara að koma mér í smá frí, smá frí frá þessu öllu. Ég ætla allavega að taka mér smá frí frá öllu og hætta að hafa áhyggjur og samviskubit. Svo verð ég að friða samviskuna á næstu önn með því að gera eitthvað.

Reyndar er alltaf eitthvað að gerast og ég ætti kannski að segja frá því... reyna að hafa smá fjör í færslunni... Ég fór norður einu sinni og tók BEGG100... við 4 héldum upp á aldarafmæli okkar saman. Ég var orðinn alveg blellaður á laugardeginum yfir hádegisleik Arsenal og Man Utd. Vaknaði góður í þynnkunni kl. 11 þann morguninn í ókunnugu rúmi eftir gott djamm kvöldið áður... Einn. Byrjaði strax á að opna mér bjór og tókum alls konar rugl yfir daginn og fórum út að borða á bautann um kvöldið á bautann. Tókum nokkra PES og fórum svo í rugl partý um kvöldið... þar var farið að renna aðeins af mér þar sem ég drakk ekkert með matnum en drakk vel í þessu partýi og man kannski ekkert alltof vel eftir kvöldinu... en fékk að heyra sögur af mér

Fór líka á eitt staffadjamm, tókum lasertag þar sem mér tókst að standa mig vægast sagt mjög illa... ég hljóp á vegg, fékk blóðnasir og vankaðist ! Seinna um köldið brutust út slagsmál á milli tveggja sem vinna á stthvorum staðnum og endaði annar allur blóðugur og handleggsbrotinn... alltaf gaman af svona partýum.

Ég fór líka í Sweeney Todd Reunion-partý sem var bara fínasta skemmtun. Ég hafði tekið djamm kvöldið áður og mætt í vinnuna kl. 10 um morguninn til 6 og beint þaðan á Wilson's að vinna yfir törnina. Hafði ekki tíma til að fá mér að borða mest allan daginn þannig að ég fór bara og hellti í mig brauði í fljótandi formi áður en ég mætti í partýið. Ég fékk að heyra að mér hefði tekist takmarkið mitt... að vera leiðinlega fullur. Biðst afsökunar á því hér og nú við fólk ef það átti það ekki skilið. En ég varð allavega of fullur til að komast niður í bæ og bið það fólk sem ég beilaði á með því afsökunar hér og nú.

Lög Dagsins:
Weezer - The World Has Turned and Left Me Here
Ljótu Hálfvitarnir - Bjór, Meiri Bjór
Morrissey - That's How People Grow up
Morrissey - The More You Ignore Me, The Closer I Get
Queens of the Stone Age - 3's and 7's
!!! (Chk Chk Chk) - Hey, is This Thing On?
Dísella - Solo Noi (Okkar Nótt)
Juliet Turner & Brian Kennedy - I Hope That I Don't Fall in Love With You
The Arcade Fire - Ocean of Noise
The Arcade Fire - Neighbourhood #1 (Tunnels)
Modest Mouse - The Never Ending Math Equation
Adam Green - We're Not Supposed To Be Lovers


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 03:59:28 / babangida

You Must Be Wondering How The Boy Next Door Turned Out/How Can Anybody Possibly Know How I Feel?

The only one around here who is me is me 

Ég er orðinn 23 ára og... Nú er enn og aftur liðinn langur tími síðan ég bloggaði síðast, eins og gengur. Ég hef einfaldlega ekki haft minnstu löngun til að taka mig til og fara að blogga þó að það sé örugglega liðinn meira en mánuður síðan að síðasta blogg kom. Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt síðan ég kom suður, eða bara síðan ég kom að utan. Samt hef ég ekki gert neitt. Varla neitt sem er uppteljandi hér.  Samt eru nú komin miðannarpróf og fyrsta prófið kláraðist í morgun en það voru einhver tölvuvandamál þannig að ég tek þetta próf líklega aftur eftir tvær vikur. Síðan í næstu viku eru  1 eða 2  50% próf (annað er optional annars er lokaprófið 100%).

Annars er þett blogg helst hugsað til að lýsa yfir dauða... Margir hlutir sem ég vil og ætla mér hér að lýsa dauða. Þar ber fyrst að nefn a Akureyri.  Þangað fór ég um helgina síðustu og ég sá hreinlega að þar er ekkert, hreinlega ekkert, og ég er farinn að hallast að því að ég verði hér í Rvk næsta sumar, ekki það að ég viti hvað ég ætla að gera hér samt. En eins og móttóið segir (eða hlýtur að segja): Þetta reddast!

Djammið er dautt. Nú mun ég ekki stunda djammið af sama eldmóð og áður, ætla mér að drekka minna en þó að drekka stundum því annað er bara ekki hægt. Ég er hreinlega kominn með ógeð á djamminu... alltaf það sama að gerast og það sama er aldrei neitt.

Flakkarinn sem ég keypti mér er dauður... þ.e. sá fjórði í röðinni! Ég fékk þó endurborgað en þvílíkt endemis rusl sem þessi spilari er. Ég býst samt fastlega við því að ég fari og kaupi mér annan sem er ekki vonandi ekki svona mikið rusl og það frá öðru fyrirtæki.

Líf mitt er dautt... ertu hissa? Það er allt svo staðnað. Sama bullið endalaust. Nú hlýtur maður að fara að breyta einhverju. Kominn með leið á þessu en samt tekst mér einhvern veginn ekki að breyta þessu. Allt í einu finnst mér ég líka vera farinn að rotna í þessari skítaholu minni hér, eins og ég saknaði hennar nú í sumar. Fyndið. Ég byrjaði að læra fyrir þessa önn í dag og stefni á að læra eitthvað á morgun. Það er séns að ég nái að græða eitthvað út úr þessari önn enn þá. Ef mér tekst svo að vera þokkalega duglegur yfir allt skólaárið þá skoðar maður að skella sér eitthvað út og fá góða lífsreynslu sem og læra eitthvað nýtt.  Mig langar að fara eitthvert út þar sem töluð er enska svo ég fái nú góða æfingu fyrir þann part af lífi mínu. Svo er ég kannski að fara út í nóvember, taka smá skemmti-helgarferð, en meir a um það ef af því verður. Svo stefnir maður auðvitað á að taka einn leik á Emirates á þessu tímabili. Ahh so many choices.

Samt finnst mér ekkert sem ég hlakka til...

But even I as sick as I am I would never be you

Lög Dagsins:
Queens of the Stone Age - Make It Wit Chu
KoRn - Evolution
Morrissey - The World is Full of Crashing Bores
Morrissey - How Can Anybody Possibly Know How I Feel
Morrissey - Let Me Kiss You
Morrissey - I Like You

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 02:44:38 / babangida

Búdjejóvitse

Jæja best að reyna einu sinni enn að koma þessari færslu inn á veraldarvefinn... af einhverjum ástæðum virðist folk.is ekki vera virkt milli 4 og 8 á morgnana. En jæja ég er allavega kominn suður og líkar bara sæmilega. Alveg ótrúlega huggulegt að vera kominn í litlu mygluholuna sína hérna fyrir sunnan þar sem að allir hlutir eru nákvæmlega þar sem maður vill hafa þá. Það eina vonda er að íbúðin er aðeins of nammileg þessa stundina þar sem að ég yfirgef haa ekkert alltof mikið... þarf að fara að mæta í skólann eitthvað að ráði.

Annars er allt enn frekar óráðið hér á þessum enda. Er ekki enn búinn að ákveða hvaða fög ég ætla að taka þessa önnina. Verð líklega að vinna á Wilson's þó að það sé ekki enn alveg ráðið. Annað veit ég fátt um. Nema að bjór er góður. Þetta hlýtur samt allt að koma í ljós á næstu dögum og þá ákveð ég hvað er besti kosturinn í stöðunni.

Annars var vel tekið á því á vígstöðvunum um helgina. Kassi kláraður og læti. Drukkið, djammað, dansað og fleira. Ansi snotur helgi að miklu leyti.

Lög Dagsins:
Andy Samberg & JT - Dick in a Box
Morrissey - I Have Forgiven Jesus
Morrissey - First of the Gang to Die
Morrissey - Irish Blood, English Heart
The Smiths - Please, Please, Please, Let Me Get What I Want


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 16:39:35 / babangida

As I Live and Breath, You Have Killed Me

Hlýtur að vera kominn tími á að blogga svo að "stalkerarnir" mínir geti fylgst betur með mér. Annars hef ég lítið verið að fylgjast með blogginu mínu og þá annarra undanfarið þar sem ég hef verið að setja upp myspace síðu og kynna mér þau má. Alltaf gaman að eyða tímanum sínum í eitthvað svoleiðis bull!

Nú fer allt að styttast í að maður fari suður aftur og byrji í skólanum aftur. Ég er hættur í sumarvinnunni og "fékk" vikufrí frá því hún kláraðist og þar til skólinn byrjar. Sá tími er semsagt hálfnaður núna og enn hef ég gert nánast ekkert með þann tíma , svona eins og maður mátti samt eiga von á. Það er ekki laust við að mann sé aðeins farið að hlakka til að fara suður aftur þó að það sé smá kvíði í manni líka. Ég er ekki einu sinni búinn að ákveða almennilega hvaða fög ég ætla að taka í vetur. Ég verð samt pottþétt í fríi á föstudögum og jafnvel kannski á fimmtudögum. Þá ætti að vera séns að skreppa norður einhverjar helgar, ja eða ég á enn eftir að skoða með vinnuna hjá mér í vetur.

Það hefur fátt markvert gerst annars síðan ég kom að utan... kláraði vinnuna og djammaði nokkuð oft... það flutti gestur inn til mín... og aftur út... Enski boltinn byrjaði og lofar góðu enn sem komið er. Ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að stýra áhorfinu hjá mér núna í vetur fyrst sýn er farin að okra á verðinu á þessu.

Alltaf gaman þegar færslurnar fá ekki að birtast samt í fyrsta og maður þarf að skrifa þær upp aftur... nenni ekki að endurtaka meira núna samt...

Lög Dagsins:
The Smiths - There is a Light That Never Goes Out
The Smiths - I Know It's Over
Morrissey - You Have Killed Me
Flight of the Conchords - It's Business time


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 02:11:56 / babangida

Calimera - Ferðasagan mín

Þá er maður kominn heim úr utanlandsreisu og verður að segjast að ferðin var snilld!

Ferðin byrjaði á að keyra suður og gista í íbúð systur minnar og taka föstudagskvöld á djamminu í borginni... vaknað daginn eftir og keyrt út á flugvöll þar sem byrjað var að drekka bjór og annað sem gerði mann góðan. Vorum orðnir vel ölvaðir áður en við náðum djamminu fyrsta kvöldið á Krít. Restina af ferðinni var drukkið bjór, djammað, skemmt sér og sleikt sól...

Ferðin í stuttu máli: Nonni, Bóbó, Svejk, 2 mín, fyrir liðið, neyðarsíminn, larokafe, kaliMera, nú er gaman að lifa, hálft fæði, Gressi og fleira skemmtilegt 

Lögin:
Rihanna - Umbrella
Flight of the Conchords - If That's What You're in to


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11